Vertu velkomin á síðuna
Klukkan
Nokkur góð blogg og síður
Myndasöfn
24.04.2008 12:20:26 / Hafsteinsson

Gleðilegt sumar

Hæ hæ,,
Gleðilegt sumar og njótið dagsins..

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 16:32:15 / Hafsteinsson

Einn mjög góður

 

Megrun fyrir karlmenn 

Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim "misstu 5 kg á 5 dögum" pakkann. 
Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur íturvaxin 19 ára snót í engu nema Nike hlaupaskóm.  Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig". 
Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni.  Eftir nokkra kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp.  Sama stúlkan mætir á þröskuldinn hjá honum næstu 4 dagana og það sama gerist í hvert skipti.  Á fimmta degi vigtar félaginn sig, og viti menn, hann hefur misst 5 kg.
Hæstánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og pantar hjá þeim
"misstu 10kg á 5 dögum" pakkann. 
Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú fallegasta og kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævinni séð.  Hún er eingöngu klædd í Reebok hlaupaskó.  Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig". 
Eins og elding tekur hann á rás á eftir skvísunni.  Hún er auðvitað í fantaformi og þó hann reyni sitt besta nær hann henni ekki.  Næstu fjóra daga heldur þessi rútína áfram og hann kemst smám saman í betra form.  Á fimmta degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst 10 kg. 
 
Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar "misstu 25 kg á 7 dögum" pakkann.  "Ertu alveg viss?"spyr sölumaðurinn " Þetta er erfiðasta prógrammið okkar"
"Ekki spurning" svarar félaginn, "mér hefur ekki liðið svona vel í mörg ár".
 
Daginn eftir er barið á dyrnar, og þegar hann opnar stendur risastór, helmassaður karlmaður fyrir utan í engu nema bleikum hlaupaskóm. 
Um hálsinn á honum hangir skilti sem á stendur "Ef ég næ þér, er rassinn á þér MINN!"   
 
Félaginn missti 32 kg í þeirri viku


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 15:35:51 / Hafsteinsson

Langur en mjög góður


Jón bóndi í Útnára hafði aldrei verið giftur, en var í gær að fá til sín

eina Thælenska úr póstlistanum “Einn með öllu”. Hann veit ekki alveg hvernig

hann á að umgangast dömuna og ákveður að hringja í póstlistann, en fyrir

slysni ruglast hann á símanúmerum og fær samband við tölvubúðina “Ein með

öllu”.

Heyrum nú hvað þeim fór á milli:

 Sölumaður (S)

Jón bóndi (J)

 RING RING

 S: “Ein með öllu” góðan daginn,

J: Já, góðan daginn. Ég fékk hjá ykkkur “Eina” núna um daginn og ég er í

helvítis brasi með hana. Ég kann bara ekkert á hana. Ég held að hún sé

tælensk…

S: Neiii.. Það getur ekki verið. Ef þú hefur fengið hana nýlega þá hlýtur

hún að vera frá Kóreu. Hvað heitir hún annars?

J: Hún heitir Hí un Dæ, held ég. Hún er allavega með merki framan á sér

sem á stendur. Hí un Dæ.

S: Já, Hyundai, það getur passað. En hvaða vandræði eru með hana?

J: Ég er búin að vera að berjast við að reyna að koma henni af stað í

allan dag en ekkert gengið.

S: Ertu búinn að taka hana úr umbúðunum?

J: Já, hún stendur hérna alveg “nettó “fyrir framan mig og ég bara veit

ekkert hvað ég á að gera næst.

S: Mér finnst nú alltaf best að hafa þær uppi á borði þegar ég nota þær.

Annars þreytist maður svo fljótt í bakinu.

J: Jááá þú segir nokkuð. Ég skelli henni þá upp á borð!

S: Gott, svo sestu framan við hana og athugar hvort hún sé orðin heit.

J: Ég er búin að þreifa aðeins á henni og hún er bara sæmilega volg víðast

hvar.

S: Hvernig týpa er þetta annars? 486?

J: Tja- 6 og ekki 6.Það sem ég var með í huga var bara svona venjulegt sex

allaveganna til að byrja með. Það er aldrei að vita hvað maður gerir svona

seinna meir.

S: Þú segir að hún sé orðin volg, já Þá skaltu grípa um músina, og færa

hana rólega þangað til að “bendillinn” er kominn þangað sem þú vilt.

J: Grípa um músina? Er það nú ekki svolítið ruddalegt svona rétt á meðan

við erum að kynnast?

S: Nei nei. Það er alveg nauðsynlegt að vera liðugur á músina þannig að þú

fáir það sem þú vilt.

J: Jæja , það skal þá þannig vera, en heyrðu, það er allt fullt af hárum á

músinni !

S: Klikkaðu undir hana og blástu svo á hana. Það ætti að duga. Hvernig er

annars minnið í henni?

J: Tja, það hefur nú lítið reynt á það ennþá hún kom nú bara í gær

S: Þú ert náttúrulega með harðan? Er það ekki?

J: Harðan. Jú, og ég er búinn að vera með hann lengi. Loksins er ég búinn

að fá eitthvað til að setja hann í!!!

S: Hvað er hann stór?

J: Stór??? Hann er svona í góðu meðallagi! ! ! !

S: O.K. gott, þeim mun stærri því meiru getur þú hlaðið á hann. Segðu mér

annað, hvernig drif er á henni?

J: Hvað meinar þú með drif??????

S: Sérðu ekki rifu framan á henni? Það er drif.

J: Já, ég sé smá rifu en ég er vanur að kalla hana allt öðrum nöfnum

S: Já, rifan er til þess að bæta í hana einu og öðru. Þú stingur bara

floppinum inn og svo er það bara “run” og “enter”.

J: Run? Þarf það???? Ég er nú ekki með það stórt herbergi að ég geti verið

að hlaupa mikið en ENTER það get ég! ! !

S: Svo veistu að þú getur tekið pásu hvenær sem er því að sá harði geymir

allt saman eins lengi og þú vilt, nema náttúrulega að hún krassi á þig !!!

J: Krassi á mig? Eiga þær það til líka? Ég get nú bara ekki hugsað þá

hugsun til enda.

S: Ef hún krassar þá getur sá harði skemmst.

J: Það hlítur að vera ósköp sárt! ! ! ! !

S: Enn hvað ætlar þú að gera við hana? Í hvað ætlar þú að nota hana?

J: Ég var nú aðallega að hugsa um að leika mér að henni meðan ég er að

kynnast henni. Svo fer ég að nota hana í eitt og annað nytsamlegt.

S: Það er upplagt að láta hana sjá um bókhaldið. Það er um að gera að nýta

möguleika hennar á öllum sviðum eins og maður getur.

J: Segðu mér eitt, er ekki óhætt að treysta þeim?

S: Jú, jú, þær eru nokkuð öruggar.

J: Hvað finnst þér um hana? Heldur þú að hún sé ekki bara nokkuð góð? Hún

Hí un Dæ???

S: Jú, ég er búinn að skoða þær margar, og þessi er örugglega þrælgóð. Þú

þarft náttúruleg að vita að þær úreldast fljótt. Þú kemur bara með hana

niðureftir og uppfærir í eina nýja. Við tökum þá gömlu uppí! ! !

J: Það er ekki að spyrja að því. Toppþjónusta sem þið veitið…

S: Já, við leggjum okkur fram við að veita kúnnanum góða þjónustu. Margir

skipta á svona tveggja ára fresti.

J: Heyrðu, ég þakka þér bara kærlega fyrir hjálpina. Nú er ég tilbúinn til

þess að hjóla í hana..

S: Gott hjá þér, og ef þú lendir í frekari vandræðum þá skal ég koma á

staðinn og hjálpa þér.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 15:34:24 / Hafsteinsson

Einu sinni var

Einu sinni var góðhjörtuð stúlka, sem var svo ófríð, að hún þorði varla út á götu nema að næturlagi. Hún hírðist með kettinum sínum í ósamþykktri kjallaraíbúð við Hverfisgötuna, og grét örlög sín og vonsku heimsins.Eina nóttina, þegar hún var á gangi meðfram Sæbrautinni, mætti hún þorski, sem lá spriklandi og hjálparvana á göngustígnum. Nú var stúlkan bæði góðhjörtuð og mátti ekkert aumt sjá sem og heiðarleg, og þar sem hún átti engan kvóta, þá sá hún, að hún yrði að koma þorskinum aftur lifandi í sjóinn. Hún klöngraðist með hann niður grjótgarðinn og lagði varlega í vatnið.

Þá tók þorskurinn til máls: “Blúbb, blúbb, blúbb, þetta var nú fallegt af þér, nú skal ég veita þér þrjár óskir.”Stúlkan var vel gefin og áttaði sig strax á tækifærunum, sem fólust í þessu tilboði.“Til að byrja með vil ég Vera geðveikt falleg og vel vaxin.”“Blúbb, blúbb, blúbb,” sagði fiskurinn og viti menn - stúlkan varð falleg og íturvaxin eins og ugga væri veifað.“Svo vil ég að ósamþykkta kjallaraholan mín breytist í lúxus-penthás íbúð í Skuggahverfi með útsýni Allan hringinn.“Blúbb, blúbb, blúbb,” sagði þorskurinn, og glænýtt háhýsi reis upp í brekkunni fyrir ofan, með samþykktri deiliskipulagsbreytingu og öllu tilheyrandi.“Að lokum vil ég að kötturinn minn breytist í fallegasta prins, sem nokkurn tíma hefur verið til.“Blúbb, blúbb, blúbb,” sagði þorskurinn. “Farðu nú og líttu á nýja heimilið þitt.”Stúlkan fór nú upp í nýja háhýsið, kom inn í nýju útsýnis-penthásíbúðina sína og mætti þar prinsinum sínum. Þorskurinn hafði nú heldur betur staðið sig vel! Ekki nóg með að þetta var glæsilegasti karlmaður, sem hún hafði nokkru sinni séð, heldur var hann búinn að leggja á borð, opna dýrindis vínflösku og bar nú fram ilmandi fiskrétt beint úr ofninum.Að lokinni rómantískri máltíð með útsýni yfir sundin, bar prinsinn stúlkuna inn í svefnherbergi og lagði hana á rúmið.Hann lagðist svo við hliðina á henni og hún titraði af eftirvæntingu. En í stað þess að byrja að láta vel að henni, hringaði hann sig, lokaði augunum og virtist ætla að fara að sofa.“Hvað er…,” hvíslaði stúlkan. “Ætlarðu ekki að….. Eigum við ekki að……”“… Gera eitthvað ljúft og skemmtilegt?” sagði prinsinn. “Við hefðum sko heldur betur getað gert það - ef þú hefðir ekki látið gelda mig í fyrra

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 22:20:58 / Hafsteinsson

Einn góður

Jóhann var að útskrifast úr laganámi frá HR.

Hann átti sér stóra drauma um glæsta framtíð.

Jóhann fór að sækja um vinnu í stóru fyrirtæki í borginni.

Starsmannastjórinn sem tók viðtalið var hrifin af þessum efnilega manni og var mjög heitur fyrir því að ráða hann í vinnu. Áður en viðtalið var búið spurði starfsmannastjórinn hvaða launahugmyndir Jóhann hefði.

“Ég var að spá í 1.500.000 á mánuði svona til að byrja með”, svaraði Jóhann.

Starfsmannastjórinn horfði á hann í smá stund og sagði svo: “Hvernig líst þér á 2.500.000 á mánuði, 2 mánaða sumarleyfi á fullu kaupi, 21% mótframlag í séreignarsjóð, nýjan LEXUS til ótakmarkaðra afnota og húshjálp til að þrífa heimilið” Jóhann varð orðlaus.

Þetta var meira en hann hafði þorað að vona.

Að lokum sagði hann í mikilli sigurvímu: “Þú hlýtur að vera að grínast!

“Starfsmannastjórinn svaraði að bragði: “Já - en þú byrjaðir á gríninu …….”


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 15:24:33 / Hafsteinsson

Vissir þú að??

Vissir þú...


.... að ef gínur í búðum væru raunverulegar konur væru þær of grannar til þess að fá blæðingar?

.... að af 3 milljörðum kvenna í heiminum eru aðeins u.þ.b. 10 súpermódel?

.... að Marlyn Monroe notaði stærð 14 (ameríska, sem er sama og 44 í evrópu) og hafði alla karlmenn í vasanum án þess að nokkur kvartaði yfir kílóunum á henni?

....að ef Barbie væri alvöru kona væri hún svo vansköpuð að hún yrði að ganga á fjórum fótum?

.... að konur eru að meðaltali 65 kíló (ekki hávaxnar) og nota stærðir 12 til 14 (amerískar = 42-44 í evrópu)?

.... að ein af hverjum 4 konum á háskólaaldri þjáist af einhverskonar átröskun?

.... að fyrirsæturnar í glanstímaritum og sjónvarpi eru lagaðar til í tölvu eða fiffaðar með lýsingu og ljósmyndatrikkum?

.... að rannsóknir hafa sýnt að fimm mínútna lestur glanstímarita veldur þungu skapi, skömm og sektarkennd hjá um 70%kvenna

.... að fyrirsætur fyrir 20 árum voru 8% léttari en konur almennt?

.... að fyrirsætur í dag eru 23% léttari en konur almennt?


Fegurð konunnar er ekki hægt að smækka niður í mælieiningar heldur felst hún í þeirri útgeislun sem ástin á sjálfri sér veitir hverri og einni.

-Fegurð felst í þroska og góðri sjálfsímynd og fer einungis batnandi með árunum.


-Spurningin er ekki um fatastærðir, kílóafjölda, hæð eða háralit, heldur er hún spurning um að læra að elska sjálfa sig frá toppi til táar.

-Hjálpumst að við að ýta undir góða sjálfsímynd hvorrar annarar. Við erum allar æði...........og ekki gleyma því!


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 11:18:38 / Hafsteinsson

25 vísbendingar um að þú ert að verða gamall.

25 vísbendingar um að þú ert að verða gamall.

 

Þú veist hvenær þú ert að verða gamall þegar...
 

Þú ert sofandi en allir halda að þú sért dáinn.

Þú ert með partí og nágrannarnir verða þess ekki varir.

Þú getur verið án kynlífs en ekki án gleraugna.

Þú ferð oftar í bakinu en þú ferð út.

Þú ert hættur að draga inn magann sama hver kemur inn.

Þú kaupir áttavita í bílinn.

Þú ert stoltur eigandi sláttuvélar.

Besti vinnur þinn er með stúlku sem er helmingi yngri... og er ekki að brjóta nein lög.

Handleggirnir á þér eru of litlir til að fletta blaðinu.

Þú syngur með laginu í lyftunni.

Þú vilt frekar fara í vinnu en að vera heima lasinn.

Þér finnst gaman að hlusta á aðra tala um spítaladvöl.

Þér finnst kaffi vera besti drykkur í heimi.

Fólk hringir í þig kl. 9 og spyr "var ég að vekja þig "?"

Þú svarar spurningu svona: "vegna þess að ég sagði það!"

Endinn á bindinu hjá þér kemur hvergi nálægt buxnaröndinni.

Þú ferð með málmleitartæki á ströndina.

Þú ert í svörtum sokkum þegar þú ert í sandölum.

Þú manst ekki eftir því hvenær þú lást á gólfinu til að horfa á sjónvarpið.

Þú ert með meira hár í eyrunum en á höfðinu.

Þú talar um "gott gras" en þú ert að tala um blettinn hjá nágrannanum.

Þú verður vondur þegar talað er um ellilífeyrinn.

Þú fékkst þér gervihnattadisk til að sjá veðurstöðina.

Þú getur farið í keilu án þess að drekka.


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 14:14:29 / Hafsteinsson

Veiðiferð

A man called home to his wife and said, " HoneyI have been asked to go
fishing up in Canada with my boss & several of his Friends .


We'll be gone for a week. This is a good opportunity for me to get that
Promotion I've been wanting, so could you please pack enough Clothes for a
week and set out my rod and fishing box, we're Leaving From the office & I
will swing by the house to pick my things up"

" Oh! Please pack my new blue silk pyjamas. "

The wife thinks this sounds a bit fishy but being the good wife she is, did
exactly what her husband asked.

The following Weekend he came home a little tired but otherwise looking good

The wife welcomed him home and asked if he caught many fish?

He said, "Yes! Lots of Salmon, some Bluegill, and a few Swordfish. But why

didn't you pack my new blue silk pyjamas like I asked you to Do?"

You'll love the answer...



The wife replied, " I did. They're in your fishing box ."

so Never Lie To A Woman...!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 09:14:02 / Hafsteinsson

Er Ísland svona klikkað

Tveir dómar sama dag á sama landinu.


Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í eins árs fangelsi, þar af níu
mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun gagnvart unnustu
sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar *sex hundruð þúsund
*krónur í miskabætur. --


----Hæstiréttur hefur dæmt Hannes Hólmstein Gissurarson til að greiða Auði
Laxness, ekkju Halldórs Laxness, *eina milljón og fimm* *hundruð þúsund* í
fébætur fyrir brot á höfundarrétti í fyrsta bindi af ævisögu Halldórs. Þá er
Hannes Hólmsteinn dæmdur til að greiða 1,6 milljónir í málskostnað.


Hvor konan ætli hafi þjáðst meira, andlega og líkamlega?


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 16:17:12 / Hafsteinsson

Einn góður

Fyrir nokkrum árum hélt læknir fram hjá konu sinni með hjúkrunarfræðingi.
> Ekki leið á löngu þar til hjúkkan varð ófrísk.
> Læknirinn gat ekki hugsað sér að upp kæmist um framhjáhaldið, lét hann því
> viðhaldið hafa
> fjárfúlgu og bað hana að fara til meginlands Evrópu og eiga barnið þar.
> Hvernig get ég látið þig vita þegar barnið fæðist?" spurði hjúkkan.
> Sendu mér bara póstkort og skrifaðu "spaghetti" á það. Ég skal svo borga
> allan brúsann."
> Konan flaug til Ítalíu og segir ekki frekar af ferðum hennar.
> En sex mánuðum seinna hringir eiginkona læknisins á stofuna til maka síns
> og segir:
> "Elskan, þú fékkst svo skrítið póstkort í dag. Það kemur frá Ítalíu, en ég
> fæ engan botn í það sem í því stendur."
> "Hafðu engar áhyggjur af því, ástin mín. Ég skoða kortið þegar ég kem
> heim."
> Læknirinn kom heim um kvöldmataleitið, las kortið og féll að því búnu í
> gólfið með hjartaslag.
> Sjúkrabíll kom á staðinn og flutti lækninn með forgangi á spítala.
> Eiginkonunni varð að sjálfsögu mjög brugðið og einn úr áhöfn bílsins varð
> eftir til að hugga hana.
> Hann spurði hana hvað gæti hafa orðið manni hennar um megn.
> Konan tók upp póstkortið og las: "Spaghetti, spaghetti, spaghetti. Tvö með
> pylsu og kjötbollum og eitt án."


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 16:16:50 / Hafsteinsson

Eru kallmenn svona einfaldir

Barþjónninn veit hver þú ert - drykkurinn segir allt... Áður en þú pantar drykk á barnum ættirðu að lesa þetta vandlega. Sjö barþjónar frá New York voru spurðir að því hvort þeir gætu sagt til um persónuleika kvenna eftir því hvað þær pöntuðu sér á barnum. Þrátt fyrir að vera spurðir í sitt hvoru lagi voru svörin nánast þau sömu.

Niðurstöðurnar:
Drykkur: Bjór
Persónuleiki: Óformleg, ekki þurftafrek; jarðbundin.
Nálgun: Skoraðu á hana í billjard.
Drykkur: Hrærðir drykkir
Persónuleiki: Óáreiðanleg, síkvartandi, skapraunandi; alveg óþolandi.
Nálgun: Forðastu hana nema þú viljir vera skósveinninn hennar.
Drykkur: Blandaðir drykkir
Persónuleiki: Þroskuð, fáguð, þurftafrek, horfir í hvert smáatriði; veit upp á hár hvað hún vil.
Nálgun: Þú þarft ekki að nálgast hana. Ef hún hefur áhuga mun hún senda ÞÉR drykk.
Drykkur: Léttvín (Zinfandel hvítvín undanskilið)
Persónuleiki: Íhaldssöm og smekkleg; veraldarvön en fjörkálfur.
Nálgun: Segðu henni að þú elskir að ferðast og njóta rólegra kvöldstunda í góðra vina hópi.
Drykkur: Zinfandel hvítvín
Persónuleiki: Einföld; telur sig vera smekklega og veraldarvana en hefur í raun enga hugmynd hvað það er.
Nálgun: Láttu henni finnast hún klárari en hún í raun er... þetta ætti að vera einfalt skotmark.
Drykkur: Skot
Persónuleiki: Kann því vel að hanga með hóp stráka og er mikið fyrir að vera vel drukkin... og nakin!
Nálgun: Auðveldasta skotmarkið á staðnum. Þú hefur heppnina með þér.

Gerðu ekkert nema bíða, en ekki reita hana til reiði!
Drykkur: Tequila
Engin þörf á frekari skýringum - segir allt sem segja þarf.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 16:16:14 / Hafsteinsson

Ducks

Three little ducks go into a Bar......
'Say, what's your name?' the bartender asked the first duck.
'Huey,' was the reply.
'How's your day been, Huey?'
'Great. Lovely day. Had a ball. Been in and out of puddles all day. What else could a duck want?' said Huey.
'Oh. That's nice,' said the bartender. He turned to the second duck, 'Hi, and what's your name?'
'Dewey,' came the answer from duck number two.
'So how's your day been, Dewey! ?' he asked.
'Great. Lovely day. I've had a ball too. Been in and out of puddles all day myself. What else could a duck want?'
The bartender turned to the third duck and said, 'So, you must be Louie?'

'No,' she said, batting her eyelashes.
'My name is Puddles.'

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 18:59:41 / Hafsteinsson

ÉG ER HÆTTUR HJÁ HILTI

JÆJA ÉG HEF SAGT MÍNU STARFI LAUSU HJÁ HILTI OG HÆTTUR FRÁ OG MEÐ DEGINUM Í DAG.. SVO ÞAÐ ÞÝÐIR EKKI AÐ HRINGJA Í GEMSANN...

BIÐ KÆRLEGA AÐ HEILSA YKKUR...

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 17:55:01 / Hafsteinsson

Einn fyrir konurnar

Kona fann Alladín-lampa liggjandi í fjörunni.
Hún tók hann upp, pússaði hann og hvað haldið þið?  Út úr lampanum steig
andi.  Furðu lostin konan spurði hvort hún fengi þrjár óskir uppfylltar.

Andinn svaraði: ' Neeei--- vegna verðbólgu, stöðugs samdráttar, lágra
launa í löndum þriðja heimsins og heiftarlegrar samkeppni um allan heim,
get ég aðeins veitt þér eina ósk og hvers óskar þú þér nú ? '

Án þess að hika sagði konan : ' Ég óska friðar í Mið-austurlöndum. Sérðu
þetta kort ? Ég vil að þessi lönd hætti að berjast hvert við annað.'

Andinn leit á kortið og hrópaði : ' VVVWaaaááááá, er ekki í lagi með þig
manneskja ! Þessi lönd hafa átt í stríði í þúsundir ára. Ég bý yfir miklum
mætti, en svona rosalega máttugur er ég ekki ! ' ' Ég held að þetta sé
ekki framkvæmanlegt, þú verður að óska þér einhvers annars. '

Konan hugsaði sig um augnablik og sagði svo: ' Okey,  ég hef aldrei getað
fundið rétta manninn, þú veist :  sem er tillitsamur,
skemmtilegur, finnst gaman að elda, hjálpar til við að þrífa húsið, er
góður í rúminu, semur við fjölskyldu mína, er ekki alltaf að horfa á
íþróttirnar og er mér trúr. Já, það sem ég óska mér er : Góður maður ! '

Andinn gaf frá sér langt andvarp og sagði : ' Láttu mig sjá þetta
fjandans kort '


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Heimsóknir
Í dag:  26  Alls: 60807
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 17 apríl
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti